01.12.2011 11:56
Dagatöl að gjöf
Lionsklúbbur Grundarfjarðar verður 40 ára á 
starfsárinu nánar tiltekið 28. janúar 2012 en þá verða liðin 40 ár frá 
stofnfundi klúbbsins.  Af þessu tilefni verður ýmislegt um að vera hjá klúbbnum 
tengt þessum tímamótum. Fyrsti viðburðurinn var 25. nóvember sl. en þá var öllum 
börnum í leikskólanum Sólvöllum  og Grunnskóla Grundarfjarðar  afhent 
Jóladagatal Lions að gjöf við góðar undirtektir viðtakenda og að sjálfsögðu 
fylgdi tannkremstúpa með ásamt límmiða með stimpli Lionsklúbbsins.
Næsta verkefni verður síðan sjálf afmælishátíðin 
sem haldin verður í sal Fjölbrautarskóla Snæfellinga laugardaginn 28. janúar 
nk. Sjá myndir í myndaalbúmi.
Skrifað af GK
