Heimasíða Lions Grundarfirði

Dagskráin, sagan ofl

Blogg

13.3.2010

Borgarnesferðin

Sælir Lionsfélagar

Smá misskilningur hefur verið í gangi.  Sýningin hans Gunnars Þórðar
byrjar kl. 17.00 á laugardaginn þannig að við þurfum að leggja af stað
kl. 15.30 frá N1/Samkaupum, byrjum á því að fara á sýninguna og borðum
síðan á eftir.  Kannski er þetta betra þegar upp er staðið því við
höfum lengri tíma til að fá okkur gott í kroppinn.... eftir sýningu.

Vona að þetta valdi ekki miklum vandræðum eða vonbrigðum hjá ykkur

fh.ferða- skemmtinefndar
Anna Bergsd.

Smávegis um sýninguna:

Létt og skemmtileg stund með hinum frábæra tónlistarmanni Gunnari Þórðarsyni en lögin hans eru löngu orðin samofin íslenskri þjóðarsál.

 Gunnar segir okkur frá lífinu í Keflavík - hvernig Hljómaævintýrið byrjaði og endaði - frá skemmtilegum og stundum grátbroslegum viðburðum á ferlinum - frá samferðamönnum og áhrifavöldum - og leikur að sjálfssögðu og syngur lögin sem tengjast frásögnunum.

 Ógleymanleg með stund með miklum listamanni. Minning sem varðveitist.

Skrifað 13.3.2010 kl. 14:05 af GK

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.2.2010

Auglýsing frá Kúttmaganefnd

Hið árlega Kúttmagakvöld verður Laugardagskvöldið 27.02.2010

í samkomuhúsi Grundarfjarðar kl: 20:00.

4 flokkur undirbýr átveisluna miklu undir stjórn Móa.

Matarverð er 2.500 kr.

Allir að taka með sér gesti.

Vinsamlega tilkynnið annað hvort með tölvupósti eða símleiðis um fjölda gesta

fyrir kl: 12:00 föstudaginn 26.02.2010.

Netfang

annamaria@grun.is  

Símanúmer

Anna María 869-6076

Gústi        863-6619

 

Kúttmaga kveðja

Mói og nefndin.

Skrifað 24.2.2010 kl. 15:39 af GK

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.2.2010

4 dagar í kúttmagakvöldið

Matarnefndin þ.e. 4. flokkur undirbýr nú átveisluna miklu á nk  laugardag undir stjórn Móa en sérlegur aðstoðarkokkur verður Gústi Jóns. Kúttmagar eru fengnir og frést hefur af fiskflutningum síðustu klukkustundir upp í kæligeymslu hjá GRUN.  Enginn liggur undir grun um stuld.

Skrifað 23.2.2010 kl. 16:08 af GK

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.2.2010

Nýjar myndir

Kíkið á myndir frá síðasta Kúttmagakvöldi sem búið er setja inn og rifjið upp hversu skemmtilegt var og þá var maturinn ekkert slor eða þannig.

Skrifað 19.2.2010 kl. 16:50 af GK

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.2.2010

Kúttmagakvöldið nálgast

Það líður að Kúttmagakvöldi sem verður nk. laugardag 27. febrúar.  Fjáröflunarnefndin hittist í dag til að undirbúa fjárplógsstarfsemi á þessum árlega viðburði.  Hvað er að frétta af öðrum undirbúningi.

Skrifað 19.2.2010 kl. 12:57 af GK

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.10.2009

Póllandsmyndir GK

Þá hafa Póllandsmyndir GK ratað inn í Myndaalbúmið. Sem fyrr gildir að myndirnar eiga við texta ferðasögunnar. GK.

Skrifað 19.10.2009 kl. 14:05 af Gunnari Kr.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.10.2009

Nýtt á vefnum

Það er búið að setja inn ferðasögurnar frá ferðum Lionsmanna til Þýskalands 2003, Skotlands 2005 og Póllands 2008. Myndir frá fyrstu tveim ferðunum sem sýndar voru á myndakvöldum hjá okkur eru komnar í myndaalbúmið. Það er rétt að benda á að ferðasögurnar þarf að lesa með því hugarfari að þær tengjast myndasíðunum.  Póllandsmyndirnar koma von bráðar.

Skrifað 12.10.2009 kl. 10:52 af Gunnari Kristjánss.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.9.2009

Jólatrésstög

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.  Það var því ekki seinna vænna en að hugsa nú þegar fyrir komandi jólatrésuppsetningu.  Finnur smíðaði varanlegar festingar og Sigurður var sérlegur aðstoðarmaður hans.  Búið er að steypa þær fastar niður og eru þær tilbúnar til notkunar.

Skrifað 16.9.2009 kl. 22:15 af Þórði Magg

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.9.2009

Heimasíða Lions á Grundarfirði

Kæru félagar.  Hér erum við að stíga okkar fyrstu skref á netinu en það ku vera afskaplega móðins að hafa allt á netinu þessa daganna.  Hér munum við því safna saman öllu efni sem hægt er að komast yfir og auglýsum því eftir myndum og hverskonar efni sem félagar telja að eigi erindi inn á þessa síðu.

Eins og gefur að skilja þá bætist við þetta smá saman en nú þegar er ein síða tilbúin, það er síðan saga klúbbsins.  Vonandi reynist þetta vera skemmtileg nýbreytni og verði til að auðvelda stjórn vinnu í framtíðinni.

Bestu kveðjur

Skrifað 14.9.2009 kl. 22:10 af Þórði Magg

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 3942
Samtals gestir: 769
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 12:53:23

Eldra efni

  • 2009